|
|
02.07.2007 13:40:35 / majakr80
»
30.04.2007 14:37:05 / majakr80
Jæja í kvöld er Sálarball nr.3 í þessum mánuði,
Grúpía eða hvað? Málið er að það var flogið til Köben á
Stuðmenn og Sálina. Jújú Stuðmenn voru fínir en Sálin ég
minnist þess engan vegin að hafa verið á Sálinni, allavega
taka 2 fór á Sálarball á Nasa á föstudaginn og var í
örugglega heilar 10 mín á ballinu, keypti bara Nonnabita og
fór heim. Skil þetta ekki alveg, þannig að í kvöld ætlum við
Unnur á Broadway á Sálina enn einu sinni og þetta
skal hafast í þetta skipti kannski spurning um að fara
bara edrú múhahahaha einmitt það er ekki að fara að gerast.
Við Unnur fórum nú samt á laugardaginn á Deco það er bara
fínasti staður, ég allavega skemmti mér vel og var bara
nokkuð temmileg aldrei þessu vant. Jæja eins gott ég fari að
hafa mig til fyrir kvöldið læt ykkur svo vita hvernig
var
»
26.04.2007 23:18:07 / majakr80
GEÐVEIKT er eina orðið sem mér dettur í hug um þessa
geggjuðu Köben ferð, það var reyndar ekki verslað nógu mikið
en það var allt saman bætt upp með drykkju BACARDI RAZZ
UUUUMMMMMMMMM NAMMI GOTT EN já ferðin var semsagt geðveik
Stefán og Ástrós eru auðvitað bara snillingar, takk fyrir
allt. Við gátum spillt Stefáni aðeins og tókum hann með
í partý á Kollegi það var gaman, hittum Ketil og co. En
ballið góða með Stuðmönnum og Sálinni var ógeðslega
skemmtilegt þó svo að allur minn tími færi í það að hanga á
barnum og leita að stelpunum og muna svo ekki rest en uhm það
kemur fyrir besta fólk það held ég, var samt geðveikt. Svo
erum við Eyrún búnar að gerast boðflennur í þrítugs afmæli á
morgun sem verður bara gaman og svo er Sálarball á Nasa eftir
það (svona til að rifja upp Sálina í Köben þar sem ég
kannast ekkert við það að sú hljómsveit hafi verið að
spila þar) En jæja meira seinna, farin að kúra
mér.
»
17.04.2007 13:31:48 / majakr80
Ég held ég þurfi ekkert að ræða spenninginn í mér
núna, ég er ekki búin að jafna mig á páskahelginni á Akureyri
sem var gargandi snilld, spurning um að bóka gistingu núna
strax fyrir næstu páska Það voru bara snillingar með í för
á Akureyri þó svo að þeim hafi fundist við stelpur háværar,
skil það nú ekki uhm Það verður reunion hjá okkur von
bráðar, vona ég
En aðalmálið núna er
Köben beibí sem við gellos erum að fara til bara núna í fyrramálið,
hlakka geðveikt til. Byrjum á því að fara á Stuðmanna og Sálarball
sem verður bara gaman á miðvikudagskvöldinu. Svo er bara djamm,
versla, og borða, þetta er það þrennt sem gert verður í þessari
ferð
Svo vorum við hjón
að horfa á Holiday í gær og hver veit nema allt geti gerst, ég er
viss um að það gerist eitthvað svoleiðis dæmi hjá okkur í
Danmörkinni, haldið þið það ekki???
Þangað til næst,
BÆ
»
16.03.2007 12:46:14 / majakr80
Sæl
og blessuð öllsömul
Ég er ennþá lifandi en er alveg hætt að nenna
þessu bloggi En nú er helgin alveg að koma og nú verður maður
alveg rólegur, ætlaði ekkert að gera seinasta föstudag nema bara
vídjó og nammi en endaði auðvitað á Sálarballi með Karen og Eyrúnu
sem var geðveikt gaman ég er bara fegin að hafa farið. En þessi
helgi verður að vera róleg leiðinlegt veður og svo skírn hjá
Arndísi Lilju á Sunnudaginn þar sem ég ætla ekki að vera úldin,
nenni því engan vegin. Sjitt Neighbours er að byrja bæjó.
»
14.02.2007 15:22:30 / majakr80
Jæja dagur elskenda runnin upp aftur, þetta er ekki
lengi að líða ég man í fyrra þegar maður var í rómantískri
göngu í París með sínum heittelskaða þá. Svo í núna bíður
manns rómantískur kvöldverður og pakki geggjað gaman, og að
þessu sinni fer ég með mínum heittelskuðu það verður geðveikt
gaman. En ég meina þó svo að við séum að fara við vinkonurnar
að fagna degi elskenda þá er það bara allt í lagi við elskum
hvort aðra Kannski eigum við eftir að sitja eins og
hálfvitar einar sem erum ekki með okkar manni en svona er
þetta þegar þeir þurfa að vera í viðskiptaferðum út um allan
heim, já þetta er erfitt líf.
LOVE YOU
»
29.01.2007 01:07:38 / majakr80
»
08.01.2007 13:46:30 / majakr80
Hæ hæ
eftir allt þetta vesen með þessa blessuðu Kúbuferð þá meina ég
dagsetningabullið og breytingarnar þá er ég komin heim eftir
viku afþví ég er búin að vera vel tuskuleg og lasin þessa viku
Fór til læknis fékk einhverjar pillur og sprautu í bossann sem
átti að laga þetta allt en viti menn það gerðist ekki neitt og
ég veit ekki einu sinni ennþá hvað er að mér, ég hef sterkan
grun um að ég hafi steikt mig í sólinni og ekki meikað meir en
þetta hlýtur að lagast. En engu að síður var þetta skemmtileg
ferð og það var mjög gaman og soldið skrítið að sjá allt þarna
maður lifir sko kóngalífi miðað við fólkið þarna skal ég segja
ykkur
Heyrið
meira seinna
Blæ
»
10.12.2006 21:32:21 / majakr80
Ég
náttúrulega endaði á því að fara báða dagana eitthvert út
einmitt af því það var vinnuhelgi, djöfull eru þær leiðinlegar
maður ohhhhh. En allavega Karen kom til mín og ég sat inní
eldhúsi með henni á nærfötunum og afþví ég þurfti að tala svo
mikið þá fann ég ekki föt fyrr en rétt áður en við fórum á stað,
kannski bara sniðugt að byrja á því að klæða sig Annars
held ég að allir mínir nágrannar hafi séð mig einhverntímann á
stripplinu hérna eftir baðferðit og annað en það er önnur saga,
kannski blundar í mér einhver flassari Aldrei að vita. Við
fórum niður á Aroma og það var mjög gaman þar eins og yfirleitt,
ótrúlegt hvaða fólk maður hittir þar. En allavega ég labbaði
heim með Ingibjörgu frænku og við náttúrulega lenntum í
brjálaðri rigningu ég var rennandi þegar ég loksins kom heim sem
var samt fínt afþví ég fór að vinna 7:30 í morgun, þetta er ekki
sniðugt ég var hálf meðvitundarlaus í allan dag og ekki mikið
gagn í mér, en allavega. Það er stórafmæli næstu helgi, Eyrun
skvís heldur upp á 25 árin sín það verður geðveikt ég get
lofað mikilli drykkju og alveg örugglega einhverri
vitleysu,uhm.
Heyrumst.
»
01.12.2006 00:13:39 / majakr80
»
28.11.2006 21:39:42 / majakr80
Heyrðu nú eru bara 25 dagar þangað
til ég fer til Kúbu Mig hlakkar svooooo til en kvíði samt
pínu fyrir að sitja ALEIN í flugvél allan þennan tíma En þetta
verður geðveikt.
Heyrðu ég kom heim í dag
til Baltimore þannig að það er búið að spenda nóg uhm, þetta
var mjög gaman við leigðum bíl og fengun einhvern brjálaðan Pontiac
eitthvað og ég held ég hafi aldrei verið jafn mikil gella eins
og á þessum bíl, bara gaman.
Heyrðu ég nenni ekki meir
núna ég verð að fara að ganga frá draslinu.
Bæ bæ
»
20.11.2006 22:44:15 / majakr80
Ég er
engan vegin að nenna þessu bloggdæmi sorry. En ég fór í
partý um helgina NORNAPARTÝI Ég er alveg viss um að margir
hefðu viljað vera flugur á vegg hehe en takk Unnur og Ólafía
fyrir frábært partý
Ég er að fara til Baltimore á
fimmtudaginn djö... hlakkar mig til ég ætla að versla þangað til ég
get ekki gengið. Og kaupa eitthvað cool handa bróður mínum og
eitthvað fallegt handa Arndísi Lilju minni og svo ætla ég bara að
hugsa um mig og engan annan frekar en vanalega
Á morgun er stór dagur ÉG
þarf að vakna fyrir hádegi og aldeilis ekki til að fara í vinnu ég
er að fara að keyra Fönnslu pönslu og Hilmir Snæ á flugvöllinn, þau
komu nebblega í stutta heimsókn og það var mjög gaman að hitta þau
og svo AUÐVITAÐ fóru frænkurnar á smá djamm hehe sem var bara
gaman. Svo þegar ég er búin að keyra þau það er að segja ef ég
kemst fram og til baka uhm þá ætla ég að fara LOKSINS til Karenar
minnar með afmælisgjöfina hennar sem ég gleymdi heima þegar ég fór
til hennar þegar hún átti afmæli og er búin að gleyma og gleyma og
gleyma, gellos vi ses á morgun.
Blæ
»
14.10.2006 11:51:35 / majakr80
»
29.09.2006 22:40:43 / majakr80
Halló
halló ég er hérna ennþá Maður var farin að fá spurnignar hvort
maður væri ekki alveg örugglega lifandi ennþá og júhú ég er það
sko. Ég er bara búin að vera puttabrotin og með gifs eins og
maður sé þríbrotinn á hendinni bara halló en allavega takk Óðinn
fyrir frábært afmæli
Það er ógeðslega mikið að
gera í skólanum en ég náttúrulega engan vegin komin í fíling læra
hvað er það En það er ógeðslega gaman ég er búin að henda mér á
nokkrar stelpur þarna svo ég sé nú ekki ein, ég hitti nebblega
Vilborgu svo sjaldan afþví við erum ekki að læra
það sama.
En annars er EKKERT að frétta
af mér, ég er að vinna og að fara í próf um helgina en það er í
góðu lagi, en bíðið þið bara ég er ekki ennþá búin að fara í
vísindaferð og ég ætla sko að fara næsta föstudag svo ætla ég að
fara einhvern tíma með Vilborgu og öllum viðskiptagaurunum og
bíðiði bara þá skal ég hafa eitthvað að segja ykkur.
Heyrðu jú eitt við Eyrún
ætlum mjög líklega að fara á Hvolsvöll en ekki Hvolfsvöll og djamma
afþví að Björkin sko sjoppan á afmæli, veit ekki alveg hvort maður
á að hætta sér þangað það virðist alltaf verða einhver skandall
hvert sem ég fer, skil þetta ekki
Þangað
til næst
»
20.08.2006 14:27:28 / majakr80
Já
góðan daginn, klikkaða kerlingin á Spáninu er búin að láta á
sölu, er það ég eða? Allaveganna drullusama ef svo
er.
Fór á
Menningarnótt í gær, náði flugeldasýningunni út um gluggann á
leigubílnum. Fór á Ölstofuna góðu hitti Karen svo átti að skella
sér á Ballið með Sálinni, mikið búið að bíða eftir því. Hvað
haldiði að hafi komið fyrir 5 skrefum fyrir utan Ölstofuna, skórinn
minn SLITNAÐI sem var bara fyndið afþví Eyrún var með auka skó
afþví hennar skór var eitthvað lélegur en viti menn MINN skór
slitnaði en náttúrulega ekki hennar sem var nú bara fyndið samt.
Mamma reddaði málunum fyrir mig og kom með skó og pabbi hlustaði
eftir Arndísi Lilju á meðan og allt var í góðu og ballið var
skemmtilegt eins og alltaf.
Þetta kvöld var svona týpískt
vesenis kvöld samt, skórinn slitnaði, týndi peningnum mínum og
miðunum hennar Unnar en allt reddaðist og var í góðu fór í
leigubílaröðina og það var náttúrulega klikkaður gaur að pikka
fight, ekki við mig samt en hann var nú duglegur að ýta í konuna
sín ljóta fíflið löggan kom og tók hann og svo loksins eftir langa
bið með lesbíum með vígtennur í leigubílaröð (ekki spurja) bara
kanna alla möguleika hehe nei nei bara djók þær bara voru þarna kom
leigubíll ætlaður okkur hjónunum við uppí og tókum farþega með sem
var góðverk kvöldsins fórum svo heim að steikja egg og beikon og
svo fórum ég og hubby (Eyrún) að lúlla okkur. Góður endir á góðu
kvöldi.
»
Síður: 1 2 3
|
|